Bloggið hjá Strympu

21.11.2006 07:33:08 / strympa3

af og á

200 grömm af í gær........takk fyrir kvittin....skal vera duglegri á bloggrúntinum :)

kv,Strympa


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.11.2006 10:24:54 / strympa3

Rokk og ról...

Ég er sko algjör rokkari, þyngdist um 300 grömm þetta skiptið.......er voðalega löt við að blogga eitthvað þessa dagana. Vonum að það fari að lagast.


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 18:20:13 / strympa3

Júhú..

Jæja loksins gerist eitthvað eða þið vitið það gerist náttlega alltaf eitthvað ef maður stendur sig vel er það ekki??  Alla vega þá missti ég 1,1 á mánudaginn og er svona að komast "back on track". Takk fyrir öll kommentin knús til ykkar stelpur.

kv,ÉG


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 21:25:49 / strympa3

Vigtin upp

Jebbs upp um 400 grömm, hefði getað verið verra en já svona er þetta víst og takk fyrir peppið stelpur frábært að vita af ykkur þarna :) ætla mér að standa mig betur næst.

knús frá mér


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 09:58:58 / strympa3

Ekki dugleg.

..Oh búin að vera alveg glötuð í þessu. Er bara búin að standa í stað og ekki gera neitt í mínum málum, er samt svo til í að taka mig en ekkert virðist ganga. Svo var ég að lesa síðuna hjá einni....sem er þvílíkt búin að taka sig á og óska þess að ég verði svona dugleg......þori ekki í vigtun á morgun því ég er svo viss um að ég hafi þyngst og þá langar mig ekkert að fara en finnst samt að ég verði að fara til að geta haldið áfram. Veit ekkert hvað ég er að bulla hérna, takk fyrir kvittin stelpur.

knús frá mér ;) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 09:04:29 / strympa3

Gengur hægt þessa dagana

Jæja þetta gengur eitthvað hægt þessa dagana en það fóru 300 grömm í gær þannig að fyrstu 5 kílóin eru farin.

kv,Strympa3


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 12:48:37 / strympa3

Sama og síðast

Já það hlaut að koma að því, ég stóð í stað í vigtuninni. Var ekki nógu dugleg í síðustu viku en er svona að koma mér af stað aftur. Takk fyrir kommentin stelpur alveg frábært að fá svona innlegg :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 10:16:19 / strympa3

Hæ :)

Fór til útlanda síðasta föstudag og passaði mig í mataræðinu eins og ég gat ;) en vissi það að ég myndi nú ekki léttast þegar ég færi í vigtun þegar ég kæmi heim. En viti menn 400grömm af ;) voðalega sátt við það.

kv,ég


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 14:30:33 / strympa3

Virkar ekki

Sko bloggið....

Get ekki sett þessa stiku inn hún er ekki að virka sko....en það fóru 1,7 í gær 4,3 farin :D:D:D:D:D:D:D

kv,ég


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 12:16:09 / strympa3

Vigtun í dag

Jæja þá er vigtun í kvöld og ég hlakka bæði til og kvíði fyrir ekki það að ég hafi verið eitthvað ódugleg í vikunni mig bara kvíðir alltaf smá fyrir ;)

Ég set inn á morgun nýjustu tölur.

kv,ég


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 12:09:06 / strympa3

Gleði gleði...

Það er svo gaman þegar fólk tekur eftir því að maður hefur lagt af. Það gerðist einmitt hjá mér, ég var að tala við samstarfskonu mín þegar einn starfsmaður segir við mig "bíddu..ert þú í einvherju átaki??" þú ert búin að leggja svo mikið af og lítur ekkert smá vel út".

Gleði gleði hugsaði ég og þetta bjargaði sko deginum hjá mér :haha:

Takk fyrir kvittin  stelpur frábært að fá smá feedback.

knús,ég


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 08:54:14 / strympa3

Vííííí

Já sko kelluna 1,7 niður ;) júhúhúhú

Takk fyrir kommentin dúllur gaman og gott að fá stuðning ég bæti ykkur á "listann" minn.

kv,ÉG


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 10:54:53 / strympa3

hmm

Þá er vigtun í dag og verður spennandi að sjá hvað gerist þar. Ég er búin að vera mjög stabíl og er bara stolt af sjálfri mér fyrir vikið ;)

Segi ykkur á morgun hvernig gekk

kv,Ég


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.08.2006 09:06:41 / strympa3

Vigtin

Fyndið hvað ég er heltekin af vigtinni núna hehe....gaman að vigta mig á morgnana þegar ég vakna sé alltaf svo skemmtilegar tölur sem ekki hafa komið á þessa vigt áður (keypti vigtina í janúar). Mér finnst svo gaman að lesa bloggið hjá Súper S og Barbietec því allt sem ég er að hugsa og spá get ég lesið hjá þeim og þær hafa svarið, takk fyrir það stelpur :D (ef þið lesið þetta hehe). Annars gengur allt bara nokkuð vel en ég þarf að fara prófa meira ég er svo löt við það en það kemur ég veit það er svo harðákveðin í að láta þetta takast.

Jæja nóg í dag  ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 09:46:20 / strympa3

Fyrstu vigtun lokið

                 

Jæja þá er fyrsta vigtun búin og það fóru 900grömm af :D voðalega sátt við það sko. Setti bara takmarkið á 70 kíló til að byrja með svo sjáum við hvort það þurfi að breyta því þegar nær dregur.

Ég er búin að vera svakalega dugleg og er voðalega sátt við þetta allt saman ;) mun svona á næstu dögum vera að laga síðuna til og svona en þar sem netið heima liggur niðri í augnablikinu verð ég dúllast við þetta í vinnunni.

kv,ég


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2